Norn var leidd að báli á Hólmavík í gærkvöldi. Um var að ræða viðburð sem nefnist Frelsun nornarinnar og er hluti af lista- og menningarhátíðinni Galdrafár á Ströndum. Nornin var leidd í fjötrum í skrúðgöngu frá Bragganum og niður á strönd. Þar var hún leyst úr böndunum og kveikti hún sjálf í báli. Meira.
Mikið stuð var í Smárabíó á miðvikudaginn þegar kvikmyndin Einskonar ást var forsýnd. Umfjöllunarefni kvikmyndarinnar hefur vakið mikla eftirtekt en kvikmyndin fjallar meðal annars um flókin ástarsambönd og OnlyFans.